Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna skipulags

september 15, 2021

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. júní 2021 eftirfarandi tillögur samkvæmt 32. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

  • Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Stafholtsveggir II í Borgarbyggð.
  • Deiliskipulag ferðaþjónustu í landi Stafholtsveggja II

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022

Breytingin tekur til landnotkunar á 4,5 ha svæði í landi Stafholtsveggja II þar sem svæðið er skilgreint sem verslunar- og þjónustusvæði úr landbúnaðarsvæði.

Deiliskipulag ferðaþjónustu í landi Stafholtsveggja II

Deiliskipulagið tekur til 5,8 ha svæðis þar sem skilgreindar eru lóðir undir þjónustubyggingar og svefnskála fyrir ferðamenn. Aðkoma er af Borgarfjarðarbraut (50).

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 var auglýst frá 14. apríl til 28. maí 2021.

Tillaga að deiliskipulagi Stafholtsveggja II var auglýst frá 21. júní til 3. ágúst 2021.

Athugasemdir bárust frá hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim eða þeim send umsögn.

Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins. Deiliskipulagstillagan hefur verið send Skipulagsstofnun og mun taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögunar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.


Share: