Auglýsing um niðurstöðu sveitarstjórnar Borgarbyggðar vegna skipulags

júlí 1, 2021

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. júní 2021 eftirfarandi tillögur samkvæmt 32. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:

  • Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, Borgarvogur og Dílatangi í Borgarnesi.
  • Borgarnes – Borgarvogur – Deiliskipulag.
  • Deiliskipulag – Borgarbyggð – Dílatangi, Borgarnesi.

Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022

Breytingin tekur til 30 ha svæðis Borgarvogs og Dílatanga í Borgarnesi og er um að ræða breytt mörk skipulagsreita.

Deiliskipulag Borgarvogs

Deiliskipulagssvæðið er um 17 ha að flatarmáli og nær yfir íþróttasvæðið í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarness ásamt Þorsteinsgötu, Kjartansgötu, Skallagrímsgötu og hluta Borgarbrautar.

Deiliskipulag Dílatanga

Deiliskipulagssvæðið er um 15,9 ha að flatarmáli og er nánast fullbyggt. Innan þess eru göturnar Dílahæð, Þórðargata, Kveldúlfsgata, Ánahlíð og hluti Borgarbrautar. Svæðið er að mestu íbúðahverfi en að auki er lóð fyrir hjúkrunarheimili, heilsugæslu og kirkjugarð Borgarness.

Tillögurnar voru auglýstar frá 22. maí 2020 til 16. júlí 2020.

Athugasemdir bárust frá íbúum og hagsmunaaðilum. Brugðist var við þeim athugasemdum eða þeim sem gerðu athugsemdir send umsögn.

Aðalskipulagsbreytingin hefur verið send Skipulagsstofnun sem sér um lokaafgreiðslu erindisins. Deiliskipulagstillögurnar hafa verið sendar Skipulagsstofnun og taka gildi með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda.

Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillögurnar og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til skipulags- og byggingardeildar Borgarbyggðar, Bjarnarbraut 8, Borgarnesi.

Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is.

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kæru frestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Sveitarstjórn Borgarbyggðar

 

 


Share: