Ekki náðust samningar milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og BSRB og því hafa félagsmenn Kjalar lagt niður störf frá og með deginum í dag, 5. júní.
Ætla má að áhrif verkfalls verði víðtæk og skerða þurfi þjónustu sveitarfélagsins að einhverju leyti. Þó eru einhverjar stofnanir sem þurfa að loka alveg á meðan á verkfalli stendur.
Hér smá sjá yfirlit yfir áhrifin:
Íþróttamiðstöðvar:
- Íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar verða lokaðar ótímabundið frá og með mánudeginum 5. júní.
Leikskólar:
- Frá mánudeginum 5. júní – 5. júlí
Misjafnt er milli deilda hversu miklar skerðingar verða, en það ræðst af því í hvaða stéttarfélagi viðkomandi starfsfólk deilda eru í.
Leikskólastjórar hafa sent nánari upplýsingar á foreldra og forráðmenn og þau hvött til að fylgjast með framvindu mála í tölvupósti.
Ráðhús:
- Frá mánudeginum 5. júní – 5. júlí.
- Þjónustuverið verður alfarið lokað föstudaginn 9. júní og mánudaginn 12. júní.
Það verður skert þjónusta í þjónustuverinu og á fjármáladeildinni. Eru íbúar hvattir til þess að senda tölvupóst á starfsfólk, sjá hér.
Þegar samningar nást tekur við hefðbundinn opnunartími og starfsemi á ný.