Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi

maí 31, 2019
Featured image for “Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi”

Skólaslit í Grunnskólanum í Borgarnesi


 


Skólaslit eru tvískipt. Annars vegar eru skólaslit 1. – 9. bekkja og hins vegar 10. bekkjar.


 


1. – 9. bekkur


 


Nemendur mæta við skólann kl. 9.00 miðvikudaginn 5. júní. Við göngum í fylkingu niður á íþróttasvæði  þar sem nemendur fara í leiki og þrautir. Á einni stöðinni í leiknum verður boðið upp á grillaða pylsu.


 


Að því loknu verður farið í Skallagrímsgarð og árgangar raða sér fyrir framan sviðið. Þar fer afhending einkunna fram. Erfitt er að gefa nákvæmlega upp tímasetningu en áætlað er að hún hefjist kl.  kl. 11: 00.


 


Skólabíll innanbæjar fer úr Sandvík kl. 8:40 og til baka um kl. 11.30 eða eftir að dagskrá lýkur. Eins verður skólaakstur úr dreifbýli þannig að passi við tímasetningar.


 


Um er að ræða tveggja og hálfs  klukkustunda útiveru, þannig að mikilvægt er að koma klædd/ur eftir veðri.


 


10. bekkur.


 


Athöfnin fer fram í Hjálmakletti og hefst kl. 17.00. Þar mæta nemendur og aðstandendur þeirra auk starfsfólks skólans.


Share: