Laus er til umsóknar staða aðstoðarleikskólastjóra í leikskólanum Klettaborg í Borgarnesi, sem er þriggja deilda leikskóli í afar fallegu umhverfi. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að leiða áfram og taka þátt í faglegu leikskólastarfi þar sem þroski og velferð barna er í fyrirrúmi. Áhersluatriðin í leikskólastarfinu eru: Einstaklingsmiðað nám, leiðtogahæfni, leikskólalæsi og heilsuefling.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
- Aðstoðarleikskólastjóri vinnur að og ber ábyrgð á, ásamt leikskólastjóra, daglegri stjórnun og skipulagningu starfsins og að unnið sé eftir aðalnámsskrá leikskóla og skólanámsskrá leikskólans
- Aðstoðarleikskólastjóri er aðstoðarmaður leikskólastjóra og staðgengill hans
Menntunar og hæfnikröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Stjórnunarreynsla
- Jákvæðni, góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Metnaður og fagmennska
- Gott vald á íslensku máli í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til 5. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Baldursdóttir leikskólastjóri í síma 433-7160. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið klettaborg@borgarbyggd.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags stjórnenda leikskóla.