Yfirlýsing frá Borgarbyggð vegna Húsafells

ágúst 7, 2020
Featured image for “Yfirlýsing frá Borgarbyggð vegna Húsafells”

Árið 2018 felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála úr gildi byggingarleyfi sem Borgarbyggð hafði gefið út fyrir legsteinaskála að Bæjargili í landi Húsafells þar sem umrætt leyfi væri hvorki í samræmi við landnotkunarflokk svæðisins samkvæmt skipulagsreglugerð né skilmálum Aðalskipulags Borgarbyggðar 2010-2022. Deiliskipulag sem hafði verið samþykkt árið 2015 af þáverandi sveitarstjórn fyrir Bæjargil hafði ekki tekið gildi vegna mannlegra mistaka. Deiliskipulagið var síðan fellt úr gildi árið 2018. Borgarbyggð harmar innilega þau mistök sem áttu sér stað á þeim tíma og hefur sveitarfélagið í kjölfarið hafið markvissar endurbætur á verkferlum á umhverfis- og skipulagssviði.

Á Húsafellstorfunni í dag er ekki mikið um byggingar sem nýttar eru til landbúnaðarnota, en ferðaþjónusta og menningartengd starfsemi eru hins vegar fyrirferðamikil á svæðinu og því mikilvægt að breyta skipulaginu þar eins og lög kveða á um. Það er mat sveitarfélagsins að hagsmunir allra aðila máls séu þeir að landnotkun afmarkaðs svæðis á Húsafelli verði breytt. Í nýja skipulaginu verður gert ráð fyrir fjölbreyttri verslun og þjónustu auk frístundabyggðar. Vinna við breytingartillögu á aðalskipulagi afmarkaðs hluta Húsafellsvæðisins er hafinn í samráði við báða aðila máls og aðra landeigendur á svæðinu.

Breytingar á aðalskipulagi er langt ferli en þann 21. júlí s.l. rann út frestur til að koma með ábendingar við verkefnalýsingu fyrir tillögu að breyttu aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010- 2022. Nú hefur vinna við breytingartillöguna sjálfa við aðalskipulagið hafist og er í ákveðnu ferli. Aðalskipulagsbreytingin tekur gildi þegar sveitarstjórn hefur samþykkt tillöguna og hún hefur verið staðfest af Skipulagsstofnun. Að svo stöddu er ekki vitað hvernig þessar tillögur verða afgreiddar eða hvernig þær líta nákvæmlega út að ferli loknu.

Þegar sveitarstjóri kom til starfa í mars s.l. var með hans fyrstu verkum, ásamt forseta sveitarstjórnar, að koma að samtölum við báða málsaðila dómsmálsins sem þá var yfirstandandi. Báðir aðilar virtust sýna vilja til sátta og var það von Borgarbyggðar að málið yrði leyst og í kjölfarið fellt niður. Það voru því mikil vonbrigði að það hafi ekki náðst en nokkuð langt virtist bera á milli aðila þrátt fyrir þessar sáttaumleitanir.

Borgarbyggð harmar þá stöðu sem komin er upp varðandi fyrirkomulag bygginga á Húsafelli. Þegar vinna við aðalskipulag hófst var rætt við aðila máls með það að leiðarljósi að hægt væri að vinna nýtt deiliskipulag samhliða breytingum á aðalskipulagi og þar með flýta málsmeðferð umsókna beggja aðila um byggingarleyfi. En á meðan aðalskipulag samræmist ekki landnotkun og deiliskipulag er ekki í gildi á svæðinu getur sveitarfélagið ekki gefið út byggingarleyfi. Nú hefur sveitarstjóri tekið aftur upp samtalið við málsaðila um að koma að sameiginlegu deiliskipulagi sem yrði unnið í sátt aðila. Borgarbyggð hefur boðist til þess að hafa milligöngu um og greiða fyrir gerð og undirbúningsvinnu vegna sameiginlegs deiliskipulags til að liðka til í málinu.

Það er öllum til hagsbóta að vinna að sameiginlegri uppbyggingu á þessu fallega og menningarríka svæði hér í Borgarbyggð.

 Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri

 

 

 

Ljósmynd ATLA.

Share: