Vinnuskóli Borgarbyggðar sumarið 2012

apríl 24, 2012
Vinnuskóli Borgarbyggðar óskar eftir umsóknum nemenda fyrir sumarið 2012. Vinnuskólinn er fyrir unglinga í 8. – 10. bekk og verður settur miðvikudaginn 6. júní n.k. kl. 9.00 í Félagsmiðstöðinni Óðali.
Vinnutímabil skólans verður 4 vikur á 8 vikna tímabili (hver og einn nemandi velur sínar vinnuvikur) eða frá 6. júní til og með 31. júlí 2012. Daglegur vinnutími er frá kl. 8:30 – 16:00 alla virka daga nema föstudaga en þá er unnið til kl. 12:00.
 
Vinnuskólinn verður með starfsstöðvar á fjórum stöðum í sveitarfélaginu:
· Á Hvanneyri undir stjórn Kára Aðalsteinssonar garðyrkjustjóra Landbúnaðarháskólans. Hafa má samband við Kára í síma 433-5000 eða á netfangið kari@lbhi.is
· Á Bifröst undir stjórn Söndru Jóhannsdóttur umsjónarmanns húsnæðis hjá Háskólanum. Hafa má samband við Söndru í síma 433-3000 eða á netfangið sandra@bifrost.is
· Í Reykholti undir stjórn Tryggva Konráðssonar staðarráðsmanns. Hafa má samband við Tryggva í síma 894-5150 eða á netfangið tryggvi@snorrastofa.is
· Í Borgarnesi undir stjórn Sigurþórs Kristjánssonar verkstjóra vinnuskólans. Hafa má samband við Sigurþór í síma 892-7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is
Umsóknareyðublöð fást í Ráðhúsi Borgarbyggðar Borgarbraut 14, Borgarnesi og á skrifstofu sveitarfélagsins að Litla-Hvammi í Reykholti en einnig má nálgast umsóknareyðublöðin á heimasíðu sveitarfélagsins www.borgarbyggd.is
 
Nánari upplýsingar gefa Sigurþór Kristjánsson verkstjóri vinnuskólans í síma 892 7970 eða á netfangið sissi@borgarbyggd.is og Jökull Helgason forstöðumaður Umhverfis- og skipulagssvið í síma 433 7100 eða á netfangið jokull@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 11. maí n.k.
 
Jökull Helgason
Forstöðumaður umhverfis- og skipulagssviðs
 

Share: