Vinnuskóli Borgarbyggðar mun starfa frá 6. júní til 31. júlí sumarið 2017. Leitast verður við að veita öllum 13-16 ára (7.-10. bekkur) unglingum búsettum í Borgarbyggð starf í Vinnuskólanum. Starfsstöðvar Vinnuskólans verða á eftirfarandi stöðum: Bifröst, Borgarnes, Hvanneyri, Reykholt. Nemendur vinnuskólans geta óskað eftir að vinna við:
- almenn garðyrkjustörf
- störf hjá stofnunum Borgarbyggðar
- störf í sumarfjöri og í skapandi sumarhóp
Forráðamenn skrá unglinga í vinnuskólann. Skráning fer fram á íbúagáttinni á heimasíðu Borgarbyggðar. Umsóknarfrestur er til 8. maí.
Aldur | Laun | Útborgun | Vinnutími | Tímabil |
13 ára. 7.bekkur | kr. 425 klst. | Fyrsta virka dag hvers mánaðar. | Mán-fös: 9-12 | 6. – 20. júní ( 2 vikur ). |
14.ára. 8.bekkur | kr. 510 klst | Fyrsta virka dag hvers mánaðar. | Mán-fim: 9-12 og 13 -16Fös: 9-12 | Hægt að velja um 8 vikur. 6.-9.júní, 12.-16.júní, 19.-23.júní, 26.-30.júní, 3.-7.júlí, 10.-14.júlí, 17.-21.júlí, 24.-28.júlí og 31.júlí. |
15.ára 9.bekkur | kr. 680 klst | Fyrsta virka dag hvers mánaðar. | Mán-fim: 9-12 og 13 -16Fös: 9-12 | Hægt að velja um 8 vikur. 6.-9.júní, 12.-16.júní, 19.-23.júní, 26.-30.júní, 3.-7.júlí, 10.-14.júlí, 17.-21.júlí, 24.-28.júlí og 31.júlí. |
16.ára 10.bekkur | kr. 850 klst. | Fyrsta virka dag hvers mánaðar. | Mán-fim: 9-12 og 13 -16Fös: 9-12 | Hægt að velja um 8 vikur. 6.-9.júní, 12.-16.júní, 19.-23.júní, 26.-30.júní, 3.-7.júlí, 10.-14.júlí, 17.-21.júlí, 24.-28.júlí og 31.júlí. |
Reglur Vinnuskólans í Borgarbyggð
- Mæta skal stundvíslega og vera tilbúinn til að hefja verk á tilsettum tíma.
- Pásur og kaffitímar eru eftir samkomulagi flokksstjóra og nemenda.
- Nemendur sýni kurteisi í samskiptum við flokkstjóra, bæjarbúa og aðra nemendur. Nemendur hafi með sér nesti í vinnu.
- Nemendur komi til vinnu klædd með tilliti til verkefna og veðurfars.
- Vinna skal öll verk eins vel og framast er kostur.
- Gengið er vel um verkfæri og tæki.
- Foreldrar láti flokkstjóra vita um forföll vegna veikinda.
- Notkun farsíma á vinnutíma eru bönnuð.