Vinaliðaverkefnið innleitt í Borgarnesi

september 9, 2013
Inga Lára og Kristján
Í síðustu viku var undirrituðu Inga Lára Sigurðardóttir verkefnastjóri í Árskóla í Skagafirði og Kristján Gíslason skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi samning um “Vinaliðaverkefnið”. Nú þegar er búið að innleiða verkefnið, sem er af norskum uppruna, í Skagafirði og er því stýrt þaðan. Samningurinn var undirritaður í Hjálmakletti þegar haldinn var kynningarfundur fyrir starfsmenn þeirra skóla sem ætla sér að innleiða vinaliðaverkefnið hér á svæðinu í vetur. Það eru auk Grunnskólans í Borgarnesi, Laugargerðisskóli og Auðarskóli. Stýrimaður verkefnisins í Borgarnesi er Hilmar Már Arason aðstoðarskólastjóri og til að byrja með verður það innleitt í 4. – 6. bekk.
Markmið vinaliðaverkefnisins er að:
Stuðla að fjölbreyttari leikjum í löngu frímínútum skólanna.
Leggja grunn sem gerir nemendum kleift að tengjast sterkum vinaböndum. Minnka togstreitu milli nemenda og hampa góðum gildum, svo sem vináttu, virðingu og því að allir fái að taka þátt.
Samhliða góðum eineltisáætlunum er markmiðið með Vinaliða-verkefninu einnig að draga úr einelti og auka vellíðan nemenda í skólum.
 
 
 

Share: