Vilt þú halda sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni?

mars 16, 2026
Featured image for “Vilt þú halda sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni?”

Borgarbyggð leitar eftir áhugasömum aðilum til að halda sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni í sumar.

Annars vegar er um að ræða námskeið sem geta orðið hluti af Sumarfjöri fyrir börn í 1.–4. bekk, þar sem hægt er að bjóða upp á eins dags eða tveggja daga námskeið.

Hins vegar er leitað eftir aðilum sem vilja halda utan um sumarnámskeið fyrir börn í 5.–7. bekk, sem geta verið viku- eða tveggja vikna námskeið.

Dæmi um námskeið geta verið:

  • útivistarnámskeið
  • íþróttanámskeið
  • listnámskeið
  • dansnámskeið
  • leikjanámskeið
  • lífstíls- og framkomunámskeið

Borgarbyggð greiðir fyrir námskeiðin að hluta eða að fullu, eftir umfangi og eðli verkefnisins. Borgarbyggð er opin fyrir fjölbreyttum hugmyndum og hvetur áhugasama til að hafa samband.

Nánari upplýsingar veitir Sonja Lind Eyglóardóttir, íþrótta- og tómstundarfulltrúi

sonjalind@borgarbyggð.is og í síma 862-8908


Share: