Vilt þú auglýsa laus störf í Borgarbyggð?

mars 8, 2021
Featured image for “Vilt þú auglýsa laus störf í Borgarbyggð?”

Nýlega tók Borgarbyggð í notkun starfatorg á heimasíðu sveitarfélagsins, sjá hér.

Fyrirtækjum og stofnunum býðst að auglýsa laus störf í sveitarfélaginu á síðunni, þeim að kostnaðarlausu.

Öll störf eru merkt eftir því hvort um er að ræða laus störf á vegum sveitarfélagsins, einkaaðila, hið opinbera eða sumarstörf.

Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar geta sett inn starfsauglýsingar með því að senda tölvupóst á maria.neves@borgarbyggd.is. Taka skal fram helstu upplýsingar um starfið ásamt umsóknarfresti.


Share: