Við áramót

desember 31, 2006
Nýtt ár heilsar, nafn þess vekur
nýjar vonir brjósti í.
Býður það oss blessun sína,
bjarta daga og vor á ný,
leysir burtu deyfð og drunga,
dreifir skýjum sólu frá,
lyftir sál á ljóssins vængjum
lífsins yfir breiðan sjó.
 
Vilborg Jóhannesdóttir frá Geirshlíð, Flókadal.
(Og þá rigndi blómum 1991: 336)

Sveitarstjórn og starfsfólk Borgarbyggðar

sendir íbúum bestu óskir um heillaríkt komandi ár

og þakkar ánægjuleg samskipti á árinu 2006.

 

Share: