Veðurklúbburinn spáir góðri tíð

október 2, 2013
Veðurklúbburinn á Dalbæ á Dalvík hefur sent frá sér spá fyrir október. Í tilkynningu frá klúbbnum sem birt er á Vikudegi segir:
 
Gert er ráð fyrir að mánuðrinn verði frekar hlýr þó komið geti ein og ein rumba í mánuðinum. Ástæða fyrir þessari spá er m.a. að októbertungl kviknar 5. þessa mánaðar kl. 00:35 í há norðri. Liðna mánuði hefur vindur oftar ekki staðið í þá átt sem tungl kviknar í í mánuðinum. Einnig styður skýjafar þessar veðurvæntingar. Margt annað styður þessa spádóma svo sem draumar og önnur atriði sem ekki verður upplýst frekar um.
Ekki er reiknað með mikilli snjókomu í október þannig að til vandræða horfi.
Til lengri tíma reikna fundarmenn með frekar góðri tíð fram að jólum, en munu að sjálfsögðu spá nánar fyrir um það þegar nær dregur.“
 

Share: