Lesandi góður!
- Átt þú slökkvitæki? Er það í lagi og hvenær var það síðast yfirfarið?
- Reykskynjari er mjög örugg og ódýr líftrygging!
- Reykskynjarar hafa 10 ára líftíma, eftir það á að skipta þeim út fyrir nýja.
- Eldvarnateppi eiga að vera aðgengileg í hverju eldhúsi!
- Farðu yfir rafmagnssnúrur og fjöltengi og fleygu því sem lélegt er.
- Farðu varlega með opin eld og kerti í gluggum nærri gardínum!
Vissir þú að..
- Slökkvitækið þarf að yfirfara eigi sjaldnar en annað hvert ár!
- Þú getur prófað reglulega virkni reykskynjarans með því að styðja fingri á prufuhnapp á skynjaranum.
- Það er góð regla að skipta um rafhlöður í reykskynjurunum, til dæmis í desember, byrjun ár hvert eða eftir þörfum.
- Það er góð regla að vera með reykskynjara í hverju herbergi.
- Við hjá Slökkvilið Borgarbyggðar hlöðum og yfirförum slökkvitæki.
- Við veitum þér ráðgjöf við val á búnaði til að gera heimilið öruggara.
Að lokum
Við vísum þér á aðila sem selja eftirfarandi eldvarnabúnað:
- Reykskynjara
- Eldvarnateppi
- Slökkvitæki af ýmsum stærðum og gerðum
Slökkvilið Borgarbyggðar
Slökkvistöðin Sólbakka 13. Sími 437 2222.