Varnaðarorð frá Slökkvilið Borgarbyggðar

desember 9, 2019
Featured image for “Varnaðarorð frá Slökkvilið Borgarbyggðar”

Lesandi góður!

  • Átt þú slökkvitæki? Er það í lagi og hvenær var það síðast yfirfarið?
  • Reykskynjari er mjög örugg og ódýr líftrygging!
  • Reykskynjarar hafa 10 ára líftíma, eftir það á að skipta þeim út fyrir nýja.
  • Eldvarnateppi eiga að vera aðgengileg í hverju eldhúsi!
  • Farðu yfir rafmagnssnúrur og fjöltengi og fleygu því sem lélegt er.
  • Farðu varlega með opin eld og kerti í gluggum nærri gardínum!

Vissir þú að..

  • Slökkvitækið þarf að yfirfara eigi sjaldnar en annað hvert ár!
  • Þú getur prófað reglulega virkni reykskynjarans með því að styðja fingri á prufuhnapp á skynjaranum.
  • Það er góð regla að skipta um rafhlöður í reykskynjurunum, til dæmis í desember, byrjun ár hvert eða eftir þörfum.
  • Það er góð regla að vera með reykskynjara í hverju herbergi.
  • Við hjá Slökkvilið Borgarbyggðar hlöðum og yfirförum slökkvitæki.
  • Við veitum þér ráðgjöf við val á búnaði til að gera heimilið öruggara.

Að lokum

Við vísum þér á aðila sem selja eftirfarandi eldvarnabúnað:

  • Reykskynjara
  • Eldvarnateppi
  • Slökkvitæki af ýmsum stærðum og gerðum

Slökkvilið Borgarbyggðar

Slökkvistöðin Sólbakka 13. Sími 437 2222.


Share: