Útvarpsstöðin K100 sendir út frá Borgarbyggð

júní 24, 2022
Featured image for “Útvarpsstöðin K100 sendir út frá Borgarbyggð”

Ísland vaknar og Helgarútgáfan verða í beinni útsendingu frá Borgarbyggð í dag og á morgun. Jón Axel og Ásgeir Páll í Ísland vaknar hófu beina útsendingu frá B59 í morgun og ætla að fá til sína góða gesti úr sveitarfélaginu. Helgarútgáfan vaknar svo í fyrramálið kl. 09:00 í Kraumu.

Íbúar eru hvattir til þess að stilla á K100, hægt er að hlusta hér eða stilla á FM100,5 í útvarpinu.


Share: