Útstrikanir og breytingar á röð á framboðslistum í Borgarbyggð

júní 1, 2018
Featured image for “Útstrikanir og breytingar á röð á framboðslistum í Borgarbyggð”

Skv. lögum um kosningar til sveitarstjórna geta kjósendur breytt nafnaröð á þeim lista sem þeir kjósa eða strikað yfir nafn frambjóðanda ef kjósandinn vill hafna þeim frambjóðanda.

Við sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 26. maí s.l. nýttu nokkrir kjósendur þennan rétt sinn og strikuðu yfir nöfn ákveðinna frambjóðenda eða breyttu röð þeirra.

Á B-lista var strikað yfir 18 nöfn og röð frambjóðenda breytt á tveimur kjörseðlum.  Á D-lista var strikað yfir 8 nöfn og röð frambjóðenda breytt á tveimur kjörseðlum.  Á S-lista var strikað yfir 9 nöfn og röð frambjóðenda breytt á þremur kjörseðlum.  Á V-lista var strikað yfir 8 nöfn og röð frambjóðenda breytt á þremur kjörseðlum.

Nánari skipting útstrikana á níu efstu sætum hvers lista var þessi:

 

  B-listi D-listi S-listi V-listi
Fjöldi yfirstrikana alls    81     32     20     20
Yfirstrikað 1. sæti    28       6       1  
Yfirstrikað 2. sæti      5       3       6      2
Yfirstrikað 3. sæti    15       6       3  
Yfirstrikað 4. sæti    10       2       2      3
Yfirstrikað 5. sæti      1         3      4
Yfirstrikað 6. sæti      5          3
Yfirstrikað 7. sæti      3         1      2
Yfirstrikað 8. sæti      1       4    
Yfirstrikað 9. sæti      1       3        1

 

Ofangreindar yfirstrikanir og tilfærslur á framboðslistum hafa ekki áhrif á röð frambjóðenda.

 


Share: