Útstrikanir og breytingar á röð á framboðslistum í Borgarbyggð

júní 2, 2014
Skv. lögum um kosningar til sveitarstjórna geta kjósendur breytt nafnaröð á þeim lista sem þeir kjósa eða strikað yfir nafn frambjóðanda ef kjósandinn vill hafna þeim frambjóðanda.
Við sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð 31. maí s.l. var nokkuð um að kjósendur nýttu þennan rétt sinn og strikuðu yfir nöfn ákveðinna frambjóðenda eða breyttu röð þeirra.
Á B-lista var strikað yfir 7 nöfn og röð frambjóðenda breytt á tólf kjörseðlum. Á D-lista var strikað yfir 17 nöfn og röð frambjóðenda breytt á tveimur kjörseðlum. Á S-lista var strikað yfir 11 nöfn og röð frambjóðenda breytt á fjórum kjörseðlum. Á V-lista var strikað yfir 7 nöfn og röð frambjóðenda breytt á fimm kjörseðlum.
 
Nánari skipting útstrikana á níu efstu sætum hvers lista var þessi:

B-listi

D-listi

S-listi

V-listi

Fjöldi yfirstrikana alls

139

81

42

60

Yfirstrikað 1. sæti

49

7

8

32

Yfirstrikað 2. sæti

69

6

8

5

Yfirstrikað 3. sæti

11

11

5

6

Yfirstrikað 4. sæti

7

4

2

11

Yfirstrikað 5. sæti

1

14

5

4

Yfirstrikað 6. sæti

6

2

1

Yfirstrikað 7. sæti

2

2

Yfirstrikað 8. sæti

1

 

Yfirstrikað 9. sæti

2

2

Ofangreindar yfirstrikanir og tilfærslur á framboðslistum hafa ekki áhrif á röð frambjóðenda.

Share: