Útboð á skólaakstri

maí 26, 2014
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í skólaakstur við grunnskóla í Borgarbyggð og akstur í tómstundastarf skólaárin 2014-2015 og 2015-2016.
 
Um er að ræða skólaakstur innanbæjar í Borgarnesi, ein leið úr dreifbýli að Grunnskólanum í Borgarnesi, tvær leiðir að Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi og tómstundaakstur frá Varmalandi í Borgarnes. Gerður verður samningur um hverja leið fyrir sig.
 
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, á skrifstofutíma.
Tilboðum skal skilað á sama stað í lokuðu umslagi, þannig merktu:
„Útboð skólaaksturs við grunnskóla í Borgarbyggð skólaárin 2014-2015 og 2015-2016“ ásamt nafni og aðsetri bjóðanda.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, mánudaginn 16. júní 2014 kl. 14:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
 
 

Share: