Útboð á skólaakstri

maí 16, 2012
Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í skólaakstur við grunnskólana í Borgarbyggð og akstur í tómstundastarf skólaárin 2012-2013, 2013-2014, 2014-2015 og 2015-2016.
Um er að ræða skólaakstur að fjórum starfsstöðvum grunnskólanna í Borgarbyggð, samtals 19 leiðir. Gerður verður samningur um hverja leið fyrir sig.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, á skrifstofutíma.
Tilboðum skal skilað á sama stað í lokuðu umslagi, þannig merktu:
„Útboð skólaaksturs við grunnskóla í Borgarbyggð skólaárin 2012-2013 til 2015 – 2016“ ásamt nafni og aðsetri bjóðanda.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, föstudaginn 15. júní 2012kl. 14:00, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
 
 

Share: