Úrvalslið frá Bandaríkjunum komið í Borgarnes

apríl 17, 2008

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur boðið til sín úrvalsliði frá Bandarríkjunum sem er U-15 ára leikmönnum.
Liðið kom til landsins í dag og mun æfa og leika æfingaleiki í Borgarnesi.

Liðið kemur frá AAU sports University í New Jersey, USA. Í liðinu eru nokkrir strákar sem eru rankaðir á topp 25 bestu í sínum aldurshópi í USA og eru háskólar í Bandaríkjunum nú þegar farnir að fylgjast með þeim og bíða eftir að strákarnir nái aldri til að koma og spila með þeim.

Með liðinu verða 5 þjálfarar og stjórnendur skólans og þar á meðal kemur fyrrverandi NBA leikmaðurinn Darryl Dawkins “súkklaði þruman” sem þekktur er fyrir sínar “monster” troðslur þar sem spjöldin hafa splundrast með tilheyrandi tilþrifum. Hann mæti í Borgarnes á laugardaginn og verður gaman að sjá með eigin augum þennan fræga körfuboltakappa.

Liðið er nú í sundi og fer síðan á æfingu og spila svo við lið frá Fjölni á föstudagskvöldið í Borgarnesi og hefst sá leikur kl. 20.00.

Um helgina verður svo haldið mót ” Sparisjóðsmótið” þar sem AAU liðið mun spila ásamt liði heimamanna og fleirum.

Leikir hefst báða daga kl. 12.00.

Á mánudaginn mun liðið fara í skoðunarferð áður en það heldur til Reykjavíkur þar sem liðið frá USA mun spila æfingaleik við U18 ára landslið Íslands í íþróttahúsinu í Dalhúsum í Grafarvogi kl.18:30

 
 

Share: