Úrskurður Félagsmálaráðuneytisins felldur úr gildi

september 26, 2002
Héraðsdómur Vesturlands hefur fellt úr gildi úrskurð Félagsmálaráðuneytisins frá 30. júlí s.l. þar sem ógiltar voru sveitarstjórnarkosningarnar í Borgarbyggð s.l. vor.
 
Samkvæmt því verða ekki uppkosningar í Borgarbyggð 2. nóvember n.k. eins og áður hefur verið auglýst.

Share: