Urðunarstaður fyrir óvirkan úrgang í Bjarnhólum við Borgarnes

maí 4, 2016

Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að endurnýja starfsleyfi fyrir urðunarstaðinn í Bjarnhólum við Borgarnes. Deiliskipulag hefur verið samþykkt fyrir svæðið og þann 6. apríl gaf Umhverfisstofnun út starfsleyfi fyrir meðhöndlun úrgangs á svæðinu. Einungis er um að ræða urðun úrgangs sem telst tækur á urðunarstaði fyrir óvirkan úrgang auk móttöku á garðaúrgangi og hrossataði til frekari meðhöndlunar.  Kröfur um ábyrga meðhöndlun úrgangs aukast stöðugt og með starfsleyfi þessu er sveitarfélaginu unnt að meðhöndla hluta þess úrgangs sem myndast á heimaslóðum, úrgang sem að öðrum kosti þyrfti að flytja um langan veg með tilheyrandi kostnaði.

Unnið er að framkvæmdum á svæðinu. Svæðinu verður skipt niður og hólfað eftir þeim úrgangsflokkum sem þangað berast til meðhöndlunar auk þess sem svæðið verður girt af og því lokað fyrir almennri umferð. Þá þarf að skrá magn úrgangs sem berst á svæðið.  Samkvæmt starfsleyfi skal innheimt gjald fyrir urðun á svæðinu og því hefur gjaldskrá fyrir urðunarstaðinn tekið gildi.

Þeir aðilar sem óska eftir að losa úrgang á svæðinu hafi samband við Áhaldahús eða Ráðhús Borgarbyggðar.   Upplýsingar um starfsleyfi, deiliskipulag og gjaldskrá er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.


Share: