Upplýsingar um skipan í kjördeildir í Borgarbyggð

júní 24, 2020
Featured image for “Upplýsingar um skipan í kjördeildir í Borgarbyggð”

Við forsetakosningar laugardaginn 27. júní 2020 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:

Borgarneskjördeild í Hjálmakletti (Menntaskólanum) í Borgarnesi

  • Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
  • Kjörfundur hefst kl. 09.00 og lýkur kl. 22:00.

Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu

  • Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku

  • Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. 

Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi

  • Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00. 

Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási

  • Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00.

Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum að Kleppjárnsreykjum

  • Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals.
  • Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 22:00.

Vinsamlega athugið mismunandi tíma á lokun kjördeildanna.

 Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.

Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar eru ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar

 Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.  Sími hennar er 433-7708.

 Kjörstjórn Borgarbyggðar


Share: