Uppkosningar 7. desember

nóvember 17, 2002
Á fundi bæjarstjórnar Borgarbyggðar í dag var samþykkt tillaga bæjarráðs og yfirkjörstjórnar Borgarbyggðar þess efnis að uppkosningar í Borgarbyggð vegna ógildingar félagsmálaráðuneytisins á sveitarstjórnarkosningum er fram fóru 25. maí 2002, fari fram laugardaginn 7. desember 2002.
Ný kjörskrá gildir fyrir kosningarnar og er viðmiðunardagur hennar 16. nóvember s.l.
Engar breytingar verða varðandi önnur atriði og eru sömu og óbreyttir framboðslistar í köri og voru 25. maí s.l.
 

Share: