Uppbyggingarsjóður Vesturlands – opið fyrir umsóknir og fjarkynning á morgun, 28. október.

október 27, 2020
Featured image for “Uppbyggingarsjóður Vesturlands – opið fyrir umsóknir og fjarkynning á morgun, 28. október.”

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í uppbyggingarsjóð Vesturlands. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2020.

Af því tilefni stendur menningarfulltrúi Vesturlands hjá SSV fyrir fjarkynningu um Uppbyggingarsjóð og menningarverkefni og svarar spurningum þátttakenda á Facebook-síðu SSV.

Jafnframt er hægt að bóka viðtal við menningarfulltrúa og fá ráðgjöf vegna menningarverkefna en að sama skapi er hægt að fá ráðgjöf vegna atvinnu- og nýsköpunarverkefna hjá atvinnuráðgjöfum SSV. 

Fjarkynningin verður haldin miðvikudaginn 28. október kl. 17:30, og verður fjarkynningin aðgengileg á síðunni eftir að streyminu líkur.

Hér má finna link á viðburðinn á Facebook.

Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands.

  • Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar
  • Verkefnastyrkir til menningarmála
  • Stofn og rekstarstyrkir til menningarmála

Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér.

Eftirtaldiraðilar bjóða fram aðstoð við umsóknir:

Atvinnu- og nýsköpunarverkefni:
Ólafur Sveinsson olisv@ssv.is  892-3208
Ólöf Guðmundsdóttir olof@ssv.is  898-0247
Helga Guðjónsdóttir helga@ssv.is  895-6707

Menningarverkefni:
Sigursteinn Sigurðsson sigursteinn@ssv.is  698-8503


Share: