Unnið að lagfæringu á lýsingu á Borgarbraut

desember 6, 2023
Featured image for “Unnið að lagfæringu á lýsingu á Borgarbraut”

Fyrir skömmu gerðist það að vegna viðgerða á Borgarbraut urðu spennubreytingar á ljósastaurum á hluta Borgarbrautar, Þórólfsgötu og Böðvarsgötu sem leiddi til þess að lampar sprungu í ljósastaurum. Verkið er í höndum RARIK. Lagfæringum lauk að mestu daginn eftir en því miður er lýsing ekki komin í samt lag að fullu, sérstaklega á Borgarbraut. Nýjir lampar komu í gær og viðgerðamenn komnir á stað, því lýkur viðgerð vonandi von bráðar.


Share: