Undirritun “þjóðarsáttmála um læsi”

ágúst 27, 2015
Ljósmynd: Guðrún JónsdóttirHátíðleg athöfn fór fram í Safnahúsi Borgarfjarðar miðvikudaginn 26. ágúst þegar undirritaður var hinn svokallaði ,,þjóðarsáttmáli um læsi“.
Um er að ræða átaksverkefni gert í því augnamiði að bæta læsi íslenskra ungmenna í samræmi við markmið sem sett eru fram í Hvítbók um umbætur í menntun. Með sáttmálanum skuldbindur ríkið og sveitarfélagið sig til þess að vinna ötullega að því að öll börn, sem til þess hafi getu, lesi sér til gagns við útskrift úr grunnskóla. Markmiðið er að 90% nemenda í 10. bekk nái lágmarksviðmiðum um að geta lesið sér til gagns í PISA könnuninni sem lögð verður fyrir árið 2018 en aðeins 79% nemenda eru færir um það í dag. Framlag skólastjórnenda, kennara, foreldra og annarra aðstandanda skiptir sköpum í að bæta læsi barna á Íslandi til framtíðar.
Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, undirritaði sáttmálann fyrir hönd ríkisins og Kolfinna Jóhannesdóttir, sveitarstjóri, fyrir hönd Borgarbyggðar. Fulltrúar nemenda aðstoðuðu ráðherra við að setja undirritaðan strimil í líkan af Íslandi til staðfestingar á sáttmálanum. Ráðherra mun ferðast um landið næstu daga og skrifa undir þjóðarsáttmálann í fleiri sveitarfélögum.
Meðfylgjandi mynd tók Guðrún Jónsdóttir við undirritunina.
Hér má sjá myndband við lagið ,,Það er gott að lesa“ sem tengist verkefninu:
 
 

Share: