Undirritunarhátíð í Brákarey á föstudag

júní 4, 2014
Föstudaginn 6. júní 2014, kl. 17.00 munu Grímshúsfélagið og Borgarbyggð staðfesta samkomulag þess efnis að Grímshúsfélagið annist, í samráði við sveitarstjórn Borgarbyggðar, endurbyggingu Grímshúss í Brákarey.
Við þetta tækifæri verður einnig undirritaður hönnunarsamningur Grímshúsfélagsins við Sigurstein Sigurðsson, arkitekt FAÍ og samningir við Eirík J. Ingólfsson ehf. um smíði glugga í húsið. Ennfremur mun Menningarráð Vesturlands afhenda félaginu styrk til þessa verkefnis.
Þessi athöfn mun, eftir veðri, fara fram við Grímshús í Brákarey eða undir nýju þaki hússins. Léttar veitingar í boði Borgarbyggðar.
 

Share: