Umsóknir um styrki úr Menningarsjóði

janúar 29, 2001

Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menningarmál í Borgarbyggð.

Æskilegt er að með umsókninni fylgi bókhaldsuppgjör síðasta árs, eða starfsárs og áætlun um nýtingu styrksins ásamt greinargerð. Að loknu starfsári afhendist sjóðsstjórn greinargerð um nýtingu styrksins.

Umsóknir skulu berast stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, Borgarnesi fyrir 20. febrúar n.k.
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar.


Share: