Um skipan í kjördeilda í Borgarbyggð

maí 10, 2007
Við alþingiskosningar laugardaginn 12. maí 2007 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:
 
Borgarneskjördeild í Grunnskólanum í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
Kjörfundur hefst kl. 9.00.
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi.
Kjörfundur hefst kl. 12.00.
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
Kjörfundur hefst kl. 12.00.
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10.00.
Kleppjárnsreykjakjördeild í Grunnskólanum Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals,
Flókadals og Reykholtsdals.
Kjörfundur hefst kl. 10.00.
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
Kjörfundur hefst kl. 12.00.
Kjörfundi má slíta 8 klst. eftir að kjörfundur hefst og fyrr við sérstakar aðstæður. Kjörfundi skal slitið eigi síðar en kl. 22.00.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og minntir á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað.
 
Á kjördag er sími yfirkjörstjórnar 845-8818 og mun hún hafa aðsetur í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Yfirkjörstjórn.
 
 

Share: