Umhverfisviðurkenningar 2018

ágúst 30, 2018
Featured image for “Umhverfisviðurkenningar 2018”

Borgarbyggð veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og hvetur íbúa til  að taka þátt  í að gera Borgarbyggð að sveitarfélagi með snyrtilega ásýnd.

Veittar verða umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð 2018 í eftirfarandi fjórum flokkum:

  1. Snyrtilegasta bændabýlið
  2. Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús
  3. Snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði
  4. Sérstök viðurkenning umhverfis,-skipulags- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála

Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum og getur hver og einn sent inn margar tilnefningar.

Tilnefningar óskast sendar í Ráðhús Borgarbyggðar í bréfi  eða tölvupósti á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en 10. september 2018.


Share: