Borgarbyggð veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera Borgarbyggð að sveitarfélagi með snyrtilega ásýnd. Veittar verða umhverfisviðurkenningar í Borgarbyggð 2018 í eftirfarandi fjórum flokkum:
- Snyrtilegasta bændabýlið
- Snyrtilegasta lóð við íbúðarhús
- Snyrtilegasta lóð við atvinnuhúsnæði
- Sérstök viðurkenning umhverfis,-skipulags- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála
Óskað er eftir tilnefningum í áðurnefndum flokkum og getur hver og einn sent inn margar tilnefningar. Tilnefningar óskast sendar í Ráðhús Borgarbyggðar í bréfi eða tölvupósti á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eigi síðar en 10. september 2018.