Borgarbyggð veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og hvetur íbúa til að taka þátt í að gera ásýnd sveitarfélagsins sem besta.
Óskað er eftir tilnefningum í eftirfarandi flokka.
- Snyrtilegt bændabýli
- Falleg lóð við íbúðarhús
- Snyrtileg lóð við atvinnuhúsnæði
- Samfélagsviðurkenning umhverfis- og landbúnaðarnefndar vegna umhverfismála
Hver og einn getur sent inn margar tilnefningar. Opið er fyrir tilnefningar til og með 17. ágúst 2020.