Tvær skipulagsauglýsingar

júlí 20, 2007
Framkvæmdasvið Borgarbyggðar sendir í dag frá sér tvær skipulagsauglýsingar. Annars vegar er um að ræða breytingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 og hins vegar breytingu á deiliskipulagi í landi Húsafells III. Auglýsingarnar er að finna hér að neðan sem og tillögurnar sjálfar. Í báðum tilfellum rennur frestur til að skila inn athugasemdum út 30. ágúst 2007. Athygli er vakinn á að hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögurnar, telst henni samþykktur.
 
 

Share: