Garðaeigendur í Borgarbyggð eru hvattir til að huga að trjágróðri sínum í lok sumars og klippa tré og runna svo þau hylji ekki umferðarskilti, hindri ekki för vegfarenda eða dragi úr götulýsingu. Bent er á að trjágróður sem hefur vaxið út fyrir lóðamörk getur skapað hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur.
Þá þarf að huga að aðgengi fyrir snjóhreinsun en gera þarf ráð fyrir 2,8 m. hæð undir trjágreinar svo snjómoksturstæki komist um.
Minnt er á að lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka: „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun“. (Úr byggingareglugerð nr. 112/2012, grein 7.2.2.)