Tónleikar með Kristni og Jónasi

nóvember 14, 2006
Næstkomandi fimmtudag koma þeir Kristinn Sigmundsson og Jónas Ingimundarson fram á tónleikum hjá Tónlistarfélagi Borgarfjarðar. Þetta er 2. verkefni félagsins á þessu starfsári, sem er afmælisár því félagið var stofnað fyrir 40 árum. Meðal annarra verkefna sem Tónlistarfélag Borgarfjarðar stendur fyrir í vetur eru aðventutónleikar 2. desember og afmælistónleikar á sumardaginn fyrsta, þar sem fram kemur tónlistarfólk úr héraði.
Tónleikarnir með Kristni og Jónasi verða eins og áður sagði næstkomandi fimmtudagskvöld (16. nóvember) í Reykholtskirkju og hefjast kl. 20.30. Aðgangseyrir er 1500 krónur fyrir aðra en félagsmenn og 1000 krónur fyrir námsmenn, börn og eldri borgara.
 
Í stjórn Tónlistarfélags Borgarfjarðar eru eftirtaldar: Jónína Eiríksdóttir, Steinunn Ingólfsdóttir, Steinunn Árnadóttir, Margrét Guðjónsdóttir og Anna Guðmundsdóttir.
 

Share: