Tökum til hendinni!

apríl 29, 2014
Frá Umhverfisnefnd Grunnskólans í Borgarnesi:
Vikuna 4. – 10. maí hvetjum við íbúa, félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki í Borgarnesi til að taka til hendinni og fegra nánasta umhverfi sitt s.s. að tína rusl, planta trjám, mála og dytta að eigum sínum. Þessa viku mun sveitarfélagið koma fyrir gámum þar sem íbúar geta losað sig við garðaúrgang sem fellur til. Gámarnir verða staðsettir á bílaplönum við skólana þ.e. við Grunnskólann, Menntaskólann, Klettaborg og Ugluklett.
Við viljum minna á opnunartíma Gámaþjónustunnar sem er alla virka daga frá kl. 14.00-18.00. Munum eftir að flokka rétt.
Skólarnir í Borgarnesi (Klettaborg, Ugluklettur, GB og MB) munu taka til í sínu nánasta umhverfi þessa viku. Lionsklúbburinn Agla og Hollvinasamtök Borgarness taka til hendinni. Hægt verður að nálgast stóra ruslapoka hjá Olís.
Þessa viku munu eftirfarandi fyrirtæki gefa afslátt af vörum sínum:
Húsasmiðjan
Kaupfélag Borgfirðinga – 30% afsl. af útimálningu og 20% afsl. af garðverkfærum og sorppokum.
Gleym mér ei býður afslátt af völdum víði og birkitrjám og ókeypis ráðgjöf í heimagörðum hjá fólki ef það vill.
 

Share: