Tímabundin ráðning starfsmanns

desember 13, 2017
Featured image for “Tímabundin ráðning starfsmanns”

Ottó Ólafsson iðnfræðingur hefur verið ráðinn tímabundið í starf fulltrúa á Umhverfis- og skipulagssvið til 3ja mánaða.

Ottó mun yfirfara skráningu þeirra fasteigna sem eru á ýmsum byggingarstigum og lokaúttekt hefur ekki farið fram. Hann mun vinna að því að skráning fasteigna sé í samræmi við lög og reglugerðir þar að lútandi og samþykkta Borgarbyggðar. Það er mikilvægt að skráning byggingarstigs sé rétt s.s. varðandi álagningu fasteignaskatts.


Share: