Tímabundin lokun Ánahlíðar

ágúst 29, 2011
Vegna vinnu við lagnir í Ánahlíð verður gatan lokuð í dag, mánudaginn 29.08.2011 og fram eftir vikunni.
Hægt verður að komast að og frá Ánahlíð um hjáleið, neðan við gafl nýbyggingarinnar og neðan við Borgarbraut 65a (íbúðarblokk aldraðra), en þar verður einnig neyðaraðkoma sjúkrabíls og slökkviliðs, ef á þarf að halda.
Umhverfis- og skipulagssvið Borgarbyggðar
 

Share: