Vegna aðstæðna í samfélaginu er nauðsynlegt að endurskipuleggja verkferla með tilliti til nýrra krafna um sóttvarnir og til að tryggja öryggi gesta og starfsmanna sundlauga og íþróttamiðstöðva.
Því hefur verið ákveðið að loka Íþróttamiðstöðina í Borgarnesi fyrr á kvöldin um óákveðin tíma frá og með deginum í dag, 20. mars 2020.
Opnunartími verður sem hér segir:
- Mánudag til föstudags frá kl. 06:00 til 21:30.
- Laugardaga, sunnudaga og aðra helgidaga frá kl. 09:00 til 17:30.
Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.