Auglýst er eftir slökkviliðsstjóra til tímabundinna starfa fyrir Borgarbyggð
Borgarbyggð óskar eftir að ráða slökkviliðsstjóra til starfa tímabundið í sex mánuði vegna forfalla. Um er að ræða afleysingastarf sem felst í stjórnun, útköllum og öðrum almennum störfum slökkviliðsins.
Slökkviliðsstjóri stjórnar og ber daglega ábyrgð á Slökkviliði Borgarbyggðar og aðstoðarslökkviliðsstjóri í forföllum hans. Hann ber ábyrgð á að starfsemin sé í samræmi við lög og reglugerðir og hefur bakvaktaskyldu utan dagvinnutíma í samvinnu við aðstoðarslökkviliðsstjóra.
Hæfniskröfur:
- Löggiltur slökkviliðsmaður með a.m.k. 4 ára starfsreynslu
- Þekking og þjálfun í brunamálum og á sviði brunavarna
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærileg menntun
- Skipulagshæfni og fagmennska
Starfssvið:
- Stjórnun og rekstur Slökkviliðs Borgarbyggðar
- Eldvarnareftirlit
- Almannavarnir
Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu sendar til borgarbyggd@borgarbyggd.is
Nánari upplýsingar veita Bjarni K. Þorsteinsson slökkviliðsstjóri í síma 437-2222 bjarnikr@borgarbyggd.is og Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri í síma 433-7100 gunnlaugur@borgarbyggd.is
Umsóknarfrestur er til 31. janúar nk.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.