Tilkynning frá Íslenska gámafélaginu vegna sorphirðu og Covid-19

mars 26, 2020
Featured image for “Tilkynning frá Íslenska gámafélaginu vegna sorphirðu og Covid-19”

Vegna COVID-19 faraldurs vill Íslenska gámafélagið koma eftirfarandi tilmælum á framfæri:

  • Almennt sorp þarf að vera í vel lokuðum pokum og ekki má yfirfylla tunnur.

  • Smitaðir einstaklingar þurfa sérstaklega að gæta þess að snýtibréf fari í vel lokuðum poka í Gráu tunnuna fyrir almennt sorp.

  • Umfram sorp sem kemst ekki í tunnur, þurfa íbúar að skila sjálfir á gámasvæðið.

  • Flokkun á endurvinnsluhráefni helst óbreytt enn sem komið er.

Þessi tilmæli eru til þess að koma í veg fyrir að starfsfólk okkar þurfi að snerta sorpið og til að draga úr smithættu.


Share: