Til íbúa Borgarbyggðar: nýtt byggðarmerki

nóvember 16, 2006
Þann 8. nóvember s.l. rann út frestur til að skila tillögum í samkeppni um nýtt byggðarmerki Borgarbyggðar.
 
Dómnefnd hefur nú lokið störfum og skilað af sér hvaða tillaga skuli valin.
 
Val nefndarinnar verður gert opinbert með viðhöfn í ráðhúsi Borgarbyggðar miðvikudaginn 22. nóvember kl. 16.oo.
 
Við sama tækifæri verður ný heimasíða Borgarbyggðar opnuð.
 
Af þessu tilefni verður opið hús í ráðhúsi Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 í Borgarnesi þennan sama dag frá kl. 16.oo – 18.oo.
 
 
Allir velkomnir
 
 

Share: