Tilboð í sorphirðu

maí 10, 2010
Opnun tilboða í útboðsverkið “Sorphirða á Akranesi, í Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppi”
Þriðjudaginn 4. maí síðastliðinn voru opnuð tilboð í sorphirðu í fyrrgreindum sveitarfélögum.
Fjögur tilboð bárust í verkið og eru þau sem hér segir:
1. Íslenska Gámafélagið ehf. kr. 496.074.584,-
2. Vélamiðstöðin ehf. kr. 532.115.824,-
3. AK flutningar ehf. kr. 595.764.455,-
4. Gámaþjónusta Vesturlands ehf. kr. 602.903.526,-
Verktími í útboðinu er 5 ár og tilboðsfjárhæðirnar eru samtölur vegna allra sveitarfélaganna.
Nú er unnið að úrvinnslu tilboðanna og að því loknu munu sveitarstjórnirnar taka málið til afgreiðslu en nýr verksamningur á að taka gildi 1. júlí í sumar.
 

Share: