
Lokið er álagningu fasteignagjalda í Borgarbyggð árið 2026.
Álagningarseðlar eru á Mínar síður – Pósthólf á island.is
Álagningarseðlar hafa verið sendir í pósti til fasteignaeigenda sem eru 78 ára og eldri.
Nánari upplýsingar um gjaldskrár eru á heimasíðu Borgarbyggðar, borgarbyggd.is, þeir sem þess óska geta haft samband við skrifstofu Borgarbyggðar og fengið senda álagningarseðla á pappír.
Gjalddagar eru tíu, sá fyrsti 25. janúar og síðan 15. hvers mánaðar fram í október.
Eindagi er 15. dag næsta mánaðar eftir gjalddaga nema hvað fyrsti eindaginn er 25. febrúar.
Greiðsluseðlar verða sendir til þeirra sem eru 78 ára eða eldri. Vinsamlega hafið samband við skrifstofu Borgarbyggðar ef óskað er breytinga á þessu fyrirkomulagi. Sími á skrifstofu Borgarbyggðar er 433-7100 og netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is
Ef gjaldendur telja álagninguna ekki rétta er hægt að fara fram á endurálagningu með rökstuddum hætti. Skrifleg beiðni þar um skal berast skrifstofu Borgarbyggðar eigi síðar en mánuði eftir álagningu gjaldanna.
Borgarnesi 28. janúar 2026
Skrifstofa Borgarbyggðar