Vegna tilslakana sem sóttvarnarlæknir hefur kynnt mun þjónustuver Borgarbyggðar opna fyrir íbúa, gesti og gangandi mánudaginn 3. maí næstkomandi.
Starfsemi sveitarfélagsins hefur fært sig um set og er nú staðsett á Bjarnabraut 8 (stjórnsýsluhúsið). Gengið er inn til hægri á jarðhæð.
Opnunartími er frá kl. 09:30 til 15:00 alla virka daga.