Þjónusta á byggingar- og skipulagsdeild á neyðarstigi almannavarna

október 7, 2020
Featured image for “Þjónusta á byggingar- og skipulagsdeild á neyðarstigi almannavarna”

Vegna hertra sóttvarnaraðgerða hefur verið ákveðið að frá og með 8. október verður ekki hægt að taka á móti íbúum og gestum á viðtalstímum byggingarfulltrúa í Ráðhúsinu. Þess í stað verður hægt að bóka rafrænan fund þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga milli kl. 11:00 – 12:00.

Hægt er að bóka rafrænan fund alla virka daga kl. 09:30-12:00 og kl. 12:30-15:00 í síma 433-7100.

Auk þess hefur símatími byggingarfulltrúa verið lengdur og verður sem hér segir:

  • Mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:30-11:30.

Viðskiptavinum er einnig bent á að senda tölvupóst á bygg@borgarbyggd.is.

Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


Share: