Þjóðaratkvæðagreiðsla – kjördeildir í Borgarbyggð

mars 5, 2010
Við þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 06. mars n.k. eru 2.543 kjósendur á kjörskrá í Borgarbyggð. Þeim er skipt í sex kjördeildir eftir svæðum innan sveitarfélagsins. Þó er rétt að benda á að kjósendur á kjörskrá, sem eru búsettir erlendis, eiga að kjósa í Borgarneskjördeild.
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kjördag verður kjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Grunnskólanum í Borgarnesi. Sími hennar er 845-8818.
 
Skipan í kjördeildir í Borgarbyggð er sem hér segir:
Borgarneskjördeild í Grunnskólanum í Borgarnesi
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár.
Kjörfundur hefst kl. 9,oo og lýkur kl. 22,oo.
 
Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu
Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi.
Kjörfundur hefst kl. 12,oo og lýkur kl. 20,oo.
 
Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku
Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár.
Kjörfundur hefst kl. 12,oo og lýkur kl. 20,oo.
 
Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri
Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst og Þverárhlíð.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo.
 
Kleppjárnsreykjakjördeild í Grunnskóla Borgarfjarðar Kleppjárnsreykjum
Þar kjósa íbúar Hvanneyrar, Andakíls, Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals og Reykholtsdals.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 22,oo.
 
Brúaráskjördeild í félagsheimilinu Brúarási
Þar kjósa íbúar Hvítársíðu og Hálsasveitar.
Kjörfundur hefst kl. 10,oo og lýkur kl. 18,oo
Vakin er sérstök athygli á þessum kjörfundartíma

Share: