Þjóðaratkvæðagreiðsla – atkvæðagreiðsla utan kjörfundar 2011

mars 15, 2011
Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram laugardaginn 9. apríl 2011. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar er hafin og fer hún fram á skrifstofu sýslumanns að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, virka daga frá
kl.09.00 til 15.00. Hægt er að kjósa aðra daga samkvæmt nánara samkomulagi við kjörstjóra.
Kjósendum er bent á að hafa persónuskilríki meðferðis á kjörstað. Einnig er kjósendum bent á upplýsingar á slóðinni: http://www.kosning.is/thjodaratkvaedagreidslur2011/frettir/nr/7846
Sýslumaðurinn í Borgarnesi.
(fréttatilkynning)
 

Share: